Fréttir



Eins árs rekstrarsaga GAMMA: Total Return Fund

6.5.2013 Starfsemi

GAMMA: Total Return Fund (TRF) hefur verið starfræktur í 1 ár og var ávöxtun hans á fyrsta rekstrarárinu 15,9% að nafnvirði eða 12,2% að raunvirði. Sjóðurinn er rafrænt skráður og opinn fyrir almenna fjárfesta.
GAMMA: Total Return Fund (TRF) hefur verið starfræktur í 1 ár og var ávöxtun hans á fyrsta rekstrarárinu 15,9% að nafnvirði eða 12,2% að raunvirði.  Á sama tíma hefur hlutabréfavísitala Kauphallar OMX6 hækkað um 9,4% og Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI um 5,4% að nafnverði. Sjóðurinn er rafrænt skráður og opinn fyrir almenna fjárfesta.
 
GAMMA: TRF hefur það markmið að viðhalda og auka að raunvirði verðmæti eigenda sjóðsins og er góður valkostur fyrir fjárfesta sem vilja spara til millilangs og langs tíma. Fjárfestingarheimildir sjóðsins gefa sjóðnum tækifæri til að ná fram mikilli eignadreifingu og miklum sveigjanleika í fjárfestingarákvörðunum.
 
Sjóðsstjóri er Valdimar Ármann, hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur en helstu fjárfestingaákvarðanir og eignasamsetning er ákvörðuð af fjárfestingarteymi GAMMA. Þannig nýtir sjóðurinn þverfaglega þekkingu starfsmanna GAMMA. Ítarleg vinna er lögð í greiningu og mat á stöðu efnahagslífsins ásamt því að meta vaxta- og verðbólguáhættu skuldabréfamarkaðar. Öll fyrirtæki í kauphöllinni eru verðlögð og einnig eru tækifæri skoðuð í óskráðum félögum. Sjóðurinn getur einnig nýtt sér kosti fagfjárfestasjóða sem nemur allt að 20% af eignum sjóðsins. 

Hér má nálgast stuttan kynningarbækling um sjóðinn - GAMMA: TRF.

Mánaðarlega er upplýsingablað um sjóðinn uppfært og má nálgast á heimasíðu sjóðsins http://www.gamma.is/sjodir/gamma-total/ eða hér.

Einnig má hafa samband við Valdimar Ármann í síma 519-3300 eða email valdimar@gamma.is fyrir nánari upplýsingar.

 

Fyrirvari

Umfjöllun þessi felur ekki í sér fjárfestingarráðgjöf eða tilboð eða hvatningu um að eiga viðskipti með verðbréf. Mat, álit og forspár endurspegla eingöngu skoðanir þeirra starfsmanna GAM Management hf. sem vinna umfjöllunina og eru þær settar fram eftir bestu samvisku miðað við útgáfudag og kunna að breytast án fyrirvara. Þó svo upplýsingar þær sem birtast í þessari umfjöllun komi frá heimildum sem við teljum vera áreiðanlegar og þó svo við höfum lagt okkur fram um að tryggja áreiðanleika upplýsinganna á útgáfudegi þá ábyrgjumst við ekki beint eða óbeint notagildi þeirra varðandi forspá um framtíðarávöxtun eða mat á núverandi verðgildi eða framtíðarverðgildi verðbréfa. Umfjöllunin ætti hvorki að skoðast sem fullnægjandi lýsing á þeim verðbréfum né á þeim mörkuðum sem hér er vitnað til. Skoðanir, sem látnar eru í ljós, kunna að vera ólíkar skoðunum á sama efni sem látnar eru í ljós af öðrum starfsmönnum GAM Management hf. og stafar það af því að beitt er mismunandi forsendum eða aðferðafræði. GAM Management hf. er rekstrarfélag Fjárfestingarsjóðs GAM Management hf. Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður skv. lögum nr. 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. Nánari upplýsingar um áhættu og fjárfestingar má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr útboðslýsingu sjóðsins, sem nálgast má á heimasíðu GAM Management hf. eða á skrifstofu félagsins. Almennt fylgir áhætta fjárfestingu í verðbréfasjóðum, fjárfestingarsjóðum og fagfjárfestasjóðum og eignarhlutdeild getur rýrnað, aukist eða staðið í stað, m.a. vegna áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðils þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Athygli er vakin á því að söguleg ávöxtun gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun.

Senda grein