Fréttir



Vísitölur GAMMA ágúst 2018

4.9.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,28% í ágúst og nam meðaldagsveltan 4,7 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 48,9 milljarða og er 2.793 milljarðar. 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Ytd-visitolur-agu-2018

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,21% í ágúst og nam meðal dagsveltan 2,5 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,51% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,42%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 59,4 ma. og er nú 1.546 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,24 og er 7,86 ár.

Nú er minna en hálft ár í lokadag RIBK 19 0226 og því fellur flokkurinn úr vísitölunni.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,21% í ágúst og nam meðaldagsveltan 651 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,05% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 419 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.120 mln nom], ARION CBI 48 [620 mln nom], ISLA CBI 24 [1.080 mln nom], ISLA CBI 26 [1.240 mln nom], LBANK CBI 24 [1.680 mln nom], LBANK CBI 28 [260 mln nom], ARION CB 22 [980 mln nom], LSS150434 [2.610 mln nom], LSS151155 [1.460 mln nom], OR090524 [2.365 mln nom], OR090546 [1.580 mln nom].

Auk þess fékk flokkurinn RVK 32 1 [3.720 mln nom] viðskiptavakt þann 27. ágúst, sama dag og hætt var með viðskiptavakt á flokknum RVK 19 1.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 20,6 ma. í mánuðinum og er 533,7 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði lítillega milli mánaða og er 6,8 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar lækkaði einnig milli mánaða og er 5,3 ár og verðtryggingarhlutfall 78,0%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-ft-agu-2018

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,4% í ágúst og nam meðaldagsveltan 1,6 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 10 ma. í mánuðinum og er 713 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í SKEL (+15,0%) og N1 (+8,6%) en mest lækkun var á bréfum ICEAIR (-18,6%) og GRND (-7,8%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í ágúst 2018

Mom-hlbr-agu-2018

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein