Fréttir



Ávöxtun lausafjársjóðarins GAMMA: LIQUID

4.8.2016 Starfsemi

Lausafjársjóðurinn GAMMA: LIQUID hefur skilað 3,08% ávöxtun síðastliðna 6 mánuði.

Lausafjársjóðurinn GAMMA: LIQUID hefur skilað 3,08% ávöxtun síðastliðna 6 mánuði sem er hæst sambærilegra sjóða (skv. keldan.is). Markmið sjóðsins er að bjóða upp á stöðuga og góða ávöxtun samhliða miklum seljanleika með því að fjárfesta í innlánum og bankavíxlum fjármálafyrirtækja. LIQUID er 6,7ma að stærð með 6,5% ávöxtunarkröfu á eignum sjóðsins (fyrir umsýsluþóknun) og líftími eigna er stuttur eða undir þremur mánuðum. Sjóðurinn er fjárfestingarsjóður sem hentar einkar vel til ávöxtunar á fé til skemmri tíma og er opinn fyrir alla fjárfesta. Enginn kostnaður er við kaup eða sölu í sjóðnum, umsýsluþóknun er lág eða einungis 0,4% á ári og viðskipti fara fram með dagsfyrirvara.

Eignasamsetning

Gengisþróun GAMMA: LIQUID

Valdimar Ármann, framkvæmdastjóri sjóða, er sjóðsstjóri LIQUID. Valdimar er menntaður hagfræðingur og með meistargráðu í fjármálaverkfræði. Valdimar starfaði á fjármálamarkaði um 7 ára skeið í London og New York áður en hann gekk til liðs við GAMMA árið 2009. Valdimar starfaði árin 2000-2002 hjá Búnaðarbankanum í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum. Ásamt störfum sínum hjá GAMMA er Valdimar er einnig aðjúnkt við Háskóla Íslands og kennir hann nú m.a. námskeiðið Skuldabréf í meistaranámi í fjármálahagfræði. Valdimar hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum í London, New York og á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar um sjóðinn s.s. lykilupplýsingar og reglur má finna á heimasíðu sjóðsins, http://www.gamma.is/sjodir/gamma-liquid/ eða hjá sjóðsstjóra Valdimar Ármann email valdimar@gamma.is
Senda grein