Fréttir



Vísitölur GAMMA júní 2015

1.7.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 2,3% í júní og nam meðaldagsveltan 10,1 milljarði. Ríkistryggða vísitalan hækkaði um 2,3% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,8% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,9%. 

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 2,3% í júní og nam meðaldagsveltan 10,1 milljarði. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 100 milljarða og eru 2.188 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 2,3% í júní. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 2,1% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 2,8%. Engin nýjar útgáfur voru í mánuðinum. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,1 prósentustig í 31,4%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14 ma. og er nú 1.460 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,1 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,8% í júní og nam meðaldagsveltan 97 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,5% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 24 milljónum.  Útgáfur í ARION CBI 21 [600mln nom], ARION CBI 29 [3.120mln nom], ISLA CBI 20 [920mln nom], ISLA CBI 26 [1.880mln nom] og LBANK CBI 22 [3.000mln nom] hækkar hlutfall þeirra bréfa í vísitölunni. Hlutfall verðtryggðra bréfa hækkar um 0,5 prósentustig og er 92,9% af vísitölunni. Sértryggð bréf hækka um 3,3 prósentustig og eru 41,2% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar á milli mánaða um 10 milljarða og er samtals um 173 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,1 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,9% í júní og nam meðaldagsveltan 1,2 ma. Mest hækkuðu bréf í TM (+7,9%) og VÍS (+7,2%). Mest lækkuðu bréf í Högum (-5,0%) og Grandi stóð í stað. Hér er átt við heildarávöxtun, þ.e. tekið er tillit til arðgreiðslna – sama gildir um grafið hér að neðan. Fasteignafélögin Eik og Reitir eru tekin inn í vísitöluna um mánaðamótin og eru samtals um 13% af markaðsvirði vísitölunna. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar frá áramótum.

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300. 

 

Senda grein