Fréttir



Vísitölur GAMMA apríl 2015

4.5.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í apríl, Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,9%, Hlutabréfavísitalan hækkaði um 3,3% og loks hækkaði Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa um 0,4%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,1% í apríl og nam meðaldagsveltan 5,7 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 10 milljarða og eru 2.069 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, lækkaði um 0,9% í apríl. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 1,2% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,2%. Gefin voru út bréf í flokkum RB17 og RB31 í mánuðinum, sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 1,3 prósentustig í 32,3%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 20 ma. og er nú 1.452 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 8,1 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,4% í apríl og nam meðaldagsveltan 94 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,7% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 52 milljónum.  Nýtt bréf, LBANK CBI 22, er tekið inn í vísitöluna um mánaðamótin (útgáfa 1.760 mln. nom). Bréfið er með 1,1% hlutfall í heildar markaðsvirði fyrirtækjavísitölunnar og 2,9% í sértryggðu vísitölunni. Á sama tíma dettur ISLA CB 15 út úr vísitölunni sökum þess að styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga og helst fjöldi bréfa því óbreyttur í 20 talsins. Hlutfall verðtryggðra bréfa hækkar um 4 prósentustig og er 92% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkar á milli mánaða um 3,7 milljarða og er samtals um 160 milljarðar. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur og er 8,0 ár.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,3% í apríl og nam meðaldagsveltan 831 milljón. Mest hækkuðu bréf í Marel (+14,8%) og Vodafone (+3,7%). Mest lækkuðu bréf í Reginn (-8,1%) og Sjóvá (-5,1%). Hér er átt við heildarávöxtun, þ.e. tekið er tillit til arðgreiðslna – sama gildir um grafið hér að neðan.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar (auk Össurar) frá áramótum

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein