Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA október 2014

3.11.2014 Vísitölur

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,9% í október. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,1% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,4%.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,9% í október. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,1% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,4%.

Engar nýjar útgáfur voru í mánuðinum, en RIKB15 dettur út úr vísitölunni um mánaðamótin þar sem styttra en 6 mánuðir eru til lokagjalddaga bréfsins. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði um 1,5 prósentustig og er nú 30,6%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 29ma. og er nú 1.395ma. Líftími vísitölunnar hækkaði um 0,2 ár og er 8,2 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein