Fréttir



Endurstilling Hlutabréfavísitölu GAMMA

30.12.2013 Vísitölur

Hlutabréfavísitala GAMMA er endurstillt ársfjórðungslega

Hlutabréfavísitala GAMMA er endurstillt ársfjórðungslega. Að þessu sinni tekur samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA engum breytingum, en vísitalan inniheldur nú 8 fyrirtæki: Eimskip, Haga, Icelandair, Marel, Reginn, TM, VÍS og Fjarskipti (Vodafone).

Samsetning vísitölunnar tekur mið af veltumestu fyrirtækjunum, þar sem gjaldgengum fyrirtækjum er raðað upp eftir veltu seinustu sex mánaða og þau síðan valin inn í vísitöluna hvert á fætur öðru þar til að minnsta kosti 90% af flotleiðréttu markaðsvirði allra gjaldgengra fyrirtækja er komið inn í vísitöluna. Gjaldgeng fyrirtæki teljast þau fyrirtæki sem eru með a.m.k. 10% frjálst flot, gefa út hlutabréf sín í krónum og eru skráð á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland.

Næsta endurstilling á sér stað mánaðamótin mars-apríl 2014, en þá kemur m.a. hið nýskráða félag N1 til greina í vísitöluna.

Hlutfallsleg samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA við endurstillingu fyrir janúar 2014

Nánari upplýsingar um vísitöluna má sjá hér: http://www.gamma.is/visitolur/

Einnig má hafa samband við Ellert Arnarson hjá GAMMA fyrir frekari upplýsingar og gögn.

Senda grein