Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA september 2013

2.9.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok ágúst, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir september.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,8% í ágúst og hefur nú hækkað um 5,5% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,2% og hefur hækkað um 5,6% á árinu og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi lækkaði um 0,3% og hefur hækkað um 5,7% það sem af er ári. Meðaldagsveltan var um 4,0ma og hefur verið um 7,3ma að meðaltali frá áramótum.
 
Gefin voru út bréf í flokkum RB15 og RB31 og hækkaði því hlutfall þeirra í vísitölunni. Greidd var vaxtagreiðsla og afborgun af HFF24 sem skýrir lækkun bréfsins í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hélt áfram að hækka og er nú 29% sem er 0,1% hækkun. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 5ma og er nú 1.498ma. Líftími vísitölunnar hækkaði um 0,1 ár og er nú 8,9 ár.
 
Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.
Senda grein