Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA júní 2013

1.7.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir júlí.

Heildarvísitala, GAMMA: GBI, lækkaði um 0,9% í júní og hefur nú hækkað um 2,5% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 1,4% og hefur hækkað um 1,3% á árinu og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,3% og hefur hækkað um 5,8% það sem af er ári. Meðaldagsveltan var um 6,9ma í júní og hefur verið um 8,6ma að meðaltali frá áramótum.

Engin útgáfa var af skuldabréfum í júní en greiddir voru vextir af RB25 og afborgun af HFF44. Lækkaði því hlutfall RB25 og HFF44. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hélt áfram að hækka og er nú 28,8% sem er 0,3% hækkun frá maí mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 32ma og er nú 1448ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 ár og er nú 8,8 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér. _

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein