Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA apríl 2013

2.4.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok mars, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir apríl.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,6% í mars og hefur nú hækkað um 2,6% það sem af er ári. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 0,7% og hefur hækkað um 2,1% á árinu og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,4% og hefur hækkað um 3,8% það sem af er ári.

Meðaldagsveltan í mars jókst umtalsvert og var 14,3ma og hefur verið um 10ma að meðaltali frá áramótum.

Í mars var lítið um útgáfur en gefið var út nýtt óverðtryggt ríkisskuldabréf RB15 í lok mánaðar. Útgáfan var 7,3ma og vigtar 0,5% í heildarvísitölunni. Það voru annars almennt litlar breytingar á vigtum skuldabréfa fyrir apríl mánuð.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,2% í 26,8% og markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 15ma og er nú 1.453ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 ár og er nú 9,1 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein