Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA febrúar 2013

4.2.2013 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok janúar, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir febrúar.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 2,4% í janúar. Verðtryggða vísitalan GAMMAi og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkuðu einnig um 2,4%. Meðaldagsveltan í janúar var um 7,5ma en jókst umtalsvert síðustu vikuna þegar hún var um 15ma að meðaltali.

Smávægilegar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar fyrir febrúar. Gefið var út 1,5ma í RB14, 5,8ma í RB22 og 3,8ma í RB31. Einnig var greidd vaxtagreiðsla af RB31. Helstu breytingar voru lækkun á vigtum HFF24 og HFF34 á móti hækkun á vigt RB22 og hækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa um 0,5% í 25,8%.

Líftími vísitölunnar hækkaði um 0,1 ár og er nú 9,3 ár og markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 43ma og er nú 1.450ma. Skýrist hækkunin bæði vegna útgáfu sem og hækkunar á vísitölunni í janúar.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein