Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA desember 2012

3.12.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok nóvember, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir desember.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 1,6% í nóvember og er hækkun hennar það sem af er ári 5,6%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 2,5% og hefur hækkað um 5,5% á árinu og óverðtryggðavísitalan GAMMAxi hækkaðium 0,6% og hefur nú  hækkað um 6,0% á árinu.

Meðaldagsveltan í nóvember var um 8,4ma. Hefur meðaldagsveltan verið um 10ma það sem af er ári.

Töluverðar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar fyrir desember. Þar sem styttra en 6 mánuðir er í lokadag á RB13 þá fellur hann úr vísitölunni og hækka aðrir flokkar til samræmis. Einnig var gefið út 3,6ma í RB31 en engin útgáfa var af verðtryggðum skuldabréfum og engin afborgun eða vaxtagreiðsla átti sér stað. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði um 3,6% í 25,2% sem skýrist af brottfalli RB13 sem og lækkun á vísitölunni sjálfri. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 108ma og er nú 1.404ma og líftími hennar hækkaði í 9,2 ár, úr 8,9 árum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein