Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA október 2012

1.10.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok september, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir október.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,1% í september og er hækkun hennar það sem af er ári 6,2%. Undirivísitölurnar GAMMAi og GAMMAxi hækkuðu einnig um 0,1% og hafa þær nú hækkað um 7,1% og 4,2% það sem af er ári.

Meðaldagsveltan í september dróst saman frá ágúst mánuði og var um 7,5ma. Hefur meðaldagsveltan verið tæpir 11ma það sem af er ári.

Litlar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar. Gefið var út 4,4ma í RB14 og 4,7ma í RB22 en engin útgáfa var af verðtryggðum skuldabréfum. Hækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa í vísitölunni um 0,5% í 28,7%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 11ma og er nú 1.507ma en líftími vísitölunnar var óbreyttur í 9 árum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

 

 

     
Senda grein