Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA september 2012

3.9.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok ágúst, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir september.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 1,7% í ágúst og er hækkun hennar það sem af er ári 6,1%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 2,0% og hefur hækkað um 7,0% á árinu en óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,9% og hefur nú  hækkað um 4,1% á árinu. 

Meðaldagsveltan í ágúst jókst umtalsvert frá júlí mánuði og var um 11ma og hefur meðaldagsveltan verið um 11ma það sem af er ári.   Mjög litlar breytingar voru á vigtum skuldabréfavísitölunnar. Gefið var út 3,0ma í RB14 og 3,1ma í RB22 en engin útgáfa var af verðtryggðum skuldabréfum og hækkaði hlutfall óverðtryggðra bréfa um 0,3% í 28,2%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 20ma og er nú 1.494ma og líftími vísitölunnar lengdist lítillega í 9 ár.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér .

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein