Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA apríl 2012

2.4.2012 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok mars, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir apríl.
Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, stóð í stað í mars og er árshækkun hennar 2,2%. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði lítillega eða um 0,1% hefur hækkað um 3,8% á árinu en óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði lítillega eða um 0,1% og hefur nú  lækkað um 1,4% á árinu.    Meðaldagsveltan dróst aðeins saman frá fyrstu mánuðum ársins og var um 12,9ma í mars og er meðaldagsveltan það sem af er ári 14,7ma.   Nýtt ríkisskuldabréf með lokadag 14. mars 2014 var gefið út í mars. Voru gefnir út 5,4ma í flokknum og er upphafsvigt hans 0,38%. Olli þetta ekki miklum breytingum á öðrum vigtum vísitölunnar en hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði úr 26,3% í 26,6%. Markaðsverðmæti skuldabréfa  í vísitölunni hækkaði um 5ma og er nú 1.461ma og lækkaði líftími vísitölunnar um 0,1 ár og er nú 9,2 ár.  

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

 

 

Senda grein