Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA október 2010

1.10.2010 Vísitölur

Skuldabréfavísitölur GAMMA lækkuðu töluvert í september eftir mikla hækkun í ágúst. Lækkaði heildarvísitalan GAMMA: GBI um 3,46% sem er mesta mánaðarlækkun frá febrúar 2009.

 Hér að neðan má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok júlí, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir ágúst. Hlutfallsvigtir eru endurstilltar fyrsta viðskiptadag hvers mánaðar miðað við gengi og stærðir skuldabréfaflokka síðasta viðskiptadags síðastliðins mánaðar.

Helstu atriði:

  • Skuldabréfavísitölur GAMMA lækkuðu í september eftir mikla hækkun í ágúst.
  • GAMMA: GBI lækkaði um 3,46%.
  • GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 3,09% en GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 3,65%.
  • Hefur GAMMA: GBI hækkað um 10,87% á árinu.
  • HFF 14 datt úr skuldabréfavísitölum GAMMA þar sem söluvakt með flokkinn fellur niður.
  • Hlutfall verðtryggðra bréfa lækkaði um 1,7% og er nú 70,8%.
  • Líftími vísitölunnar lækkaði úr 9,2 í 9,0 ár.
  • Heildarmarkaðsverðmæti skuldabréfa GAMMA: GBI lækkaði um 88ma í september og er nú 1.227ma.

Mánaðarskýrsluna má finna hér.GAMMA-Government-Bond-Index-OKT-2010

Senda grein