Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA í september 2010

1.9.2010 Vísitölur

Skuldabréfavísitölur GAMMA hækkuðu mikið í ágúst og hefur mánaðarhækkun ekki verið meiri frá maí 2009.GAMMA: GBI hækkaði um 5,04%.

Hér að neðan má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok ágúst, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir september. Hlutfallsvigtir eru endurstilltar fyrsta viðskiptadag hvers mánaðar miðað við gengi og stærðir skuldabréfaflokka síðasta viðskiptadags síðastliðins mánaðar.

Helstu atriði:

  • Skuldabréfavísitölur GAMMA hækkuðu mikið í ágúst og hefur mánaðarhækkun ekki verið meiri frá maí 2009.
  • GAMMA: GBI hækkaði um 5,04%.
  • GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 5,59% en GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 3,64%.
  • Hefur GAMMA: GBI hækkað um 14,85% á árinu.
  • Hlutfall verðtryggðra bréfa jókst lítillega og er nú 72,50%
  • Nýtt ríkisbréf RB12 0824 bættist í vísitöluna
  • Líftími vísitölunnar jókst úr 8,85 í 9,17 ár.
  • Heildarmarkaðsverðmæti skuldabréfa í GAMMA: GBI hækkaði um 84ma í og er nú 1.315ma.

Mánaðarskýrsluna má finna hér.

Senda grein