Vísitölur GAMMA september 2018
Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,26% í september og nam meðaldagsveltan 5,8 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 8,3 milljarða og er 2.804 milljarðar.
Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index
Einblöðungur GAMMA: Equity Index
Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index
Gengi vísitalna frá áramótum
Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,39% í september og nam meðal dagsveltan 3,5 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,70% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,36%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 9,4 ma. og er nú 1.557 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,08 og er 7,78 ár.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,50% í september og nam meðaldagsveltan 815 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,49% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 659 milljónum.
Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ISLA CBI 24 [600 mln nom], ISLA CBI 30 [1.120 mln nom], LBANK CBI 24 [1.420 mln nom], LBANK CBI 28 [700 mln nom], LSS151155 [1.067 mln nom], RVK 32 1 [100 mln nom].
Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 3,3 ma. í mánuðinum og er 530,6 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkaði lítillega milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar hækkaði einnig milli mánaða og er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 78,8%.
Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA
Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í september og nam meðaldagsveltan 1,5 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 7 ma. í mánuðinum og er 720 ma.
Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í HAGA (+4,7%) og MARL (+3,7%) en mest lækkun var á bréfum EIM (-6,8%) og N1 (-6,7%).
Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í september 2018
Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .