Fréttir



Vísitölur GAMMA október 2018

1.11.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,10% í október og nam meðaldagsveltan 6,0 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 26,2 milljarða og er 2.830 milljarðar

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index  

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-OKT-2018

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,30% í október og nam meðal dagsveltan 3,0 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,73% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,72%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 11,0 ma. og er nú 1.546 ma. Líftími vísitölunnar hækkar lítillega og er 7,78 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,43% í október og nam meðaldagsveltan 1.196 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,64% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 1.012 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [580 mln nom], ARION CBI 48 [420 mln nom], ISLA CBI 24 [1.460 mln nom], ISLA CBI 30 [900 mln nom], LBANK CBI 24 [1.900 mln nom], LBANK CBI 28 [1.100 mln nom], LSS150434 [1.440 mln nom], LSS151155 [640 mln nom], OR090524 [1.350 mln nom], OR090546 [420 mln nom], RVK 32 1 [460 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 3,8 ma. í mánuðinum og er 534,2 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkaði lítillega milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar lækkaði lítillega og er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 79,0%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-OKT-2018

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,3% í október og nam meðaldagsveltan 1,7 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 30 ma. í mánuðinum og er 750 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í ICEAIR (+4,7%) og MARL (+3,1%) en mest lækkun var á bréfum EIM (-15,9%) og ARION (-9,5%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í október 2018

MOM-HLBR-OKT-2018

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein