Fréttir



Vísitölur GAMMA október 2017

1.11.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 2,04% í október og nam meðaldagsveltan 6,1 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 40 milljarða og er 2.787 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-OKT-2017

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,74% í október og nam meðal dagsveltan 3,0 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,69% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,83%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 18,6 ma. og er nú 1.625 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,03 og er 7,84 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,21% í október og nam meðaldagsveltan 674 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,30% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 627 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [7.280 mln nom], LBANK CBI 24 [2.020 mln nom], LBANK CBI 28 [1.180 mln nom], LSS150434 [1.809 mln nom], RVKN 35 1 [320 mln nom], REGINN290547 [880 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 3,9 ma. í mánuðinum og er 393,9 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar lítillega milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 64,9%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-OKT-2017[2]

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,1% í október og nam meðaldagsveltan 2,4 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 23 ma. í mánuðinum og er 768 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í ICEAIR (+11,9%) og VIS (+10,8%) en mest lækkun var á bréfum Reita (-2,0%) og Haga (-1,2%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í október 2017

 MOM-HLBR-OKT-2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein