Fréttir



Vísitölur GAMMA október 2016

1.11.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,5% í október og nam meðaldagsveltan 7,8 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,4% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,4% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 4,1%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,5% í október og nam meðaldagsveltan 7,8 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar er 2.501 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,4% í október og nam meðal dagsveltan 4,8 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,1% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,2%.

Nýtt bréf var tekið inn í vísitöluna um mánaðamótin, RIKS 30 0701 [71,3 ma. nom], þar sem tekin var upp viðskiptavakt á bréfinu í október. Er þetta fyrsta skuldabréfið sem tekið er inn í verðtryggða hluta ríkistryggðu vísitölunnar frá því í maí 2010. Bréfið vegur 5,9% í heildarvísitölunni og 8,5% í verðtryggðu undirvísitölunni. Einnig voru gefin voru út bréf í flokki RB20 [2.590 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 84 ma. og er nú 1.518 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 ár og er 8,0 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,4% í október og nam meðaldagsveltan 248 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,4% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 194 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [200 mln nom], ISLA CBI 26 [1.140 mln nom], LBANK CBI 22 [900 mln nom], ARION CB 22 [400 mln nom], ISLA CB 19 [340 mln nom], LBANK CB 17 [1.600 mln nom], LBANK CB 19 [1.060 mln nom] og LSS24 [300 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 5 ma. í mánuðinum og er 265 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 ár og er 7,1 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 67,6%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 4,1% í október og nam meðaldagsveltan 2,7 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 29 ma. í mánuðinum og er 732 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í N1 (+22,0%) og TM (+12,8%) en mest lækkun var í bréfum Granda (-2,0%) og Vodafone (-5,9%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í október 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein