Fréttir



Vísitölur GAMMA nóvember 2018

5.12.2018

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,46% í nóvember og nam meðaldagsveltan 9,2 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 13,9 milljarða og er 2.849 milljarðar

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index 

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

1_1544184532906

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,80% í nóvember og nam meðal dagsveltan 3,5 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,21% og sú óverðtryggða hækkaði um 3,25%. Nýr flokkur var gefinn út í mánuðinum, RIKS 26 0216, sem hefur 0,52% vægi í heildarvísitölunni og 0,72% í þeirri verðtryggðu. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 22,7 ma. og er nú 1.574 ma. Líftími vísitölunnar lækkar lítillega og er 7,72 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,27% í nóvember og nam meðaldagsveltan 1.497 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,46% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 1.301 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [3.040 mln nom], ARION CBI 48 [1.520 mln nom], ARION CB 22 [300 mln nom], ISLA CB 23 [620 mln nom], LBANK CBI 24 [2.140 mln nom], LBANK CBI 28 [1.140 mln nom], LSS150434 [1.045 mln nom], LSS151155 [1.255 mln nom], AL260148 [1.240 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 7,7 ma. í mánuðinum og er 526,5 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkaði lítillega milli mánaða og er 7,0 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar hækkaði lítillega og er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 82,4%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-fyrirtaekjaskuldabrefavisitolu-2

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,9% í nóvember og nam meðaldagsveltan 2,6 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 7 ma. í mánuðinum og er 757 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í ICEAIR (+24,2%) og EIM (+14,9%) en mest lækkun var á bréfum VIS (-5,5%) og SJOVA (-5,0%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í nóvember 2018

3_1544023746273

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein