Fréttir



Vísitölur GAMMA nóvember 2017

1.12.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,89% í nóvember og nam meðaldagsveltan 6,3 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 26 milljarða og er 2.818 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

 YTD-visitolur-NOV-2017

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,45% í nóvember og nam meðal dagsveltan 3,5 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,68% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,96%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 23,6 ma. og er nú 1.649 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,01 og er 7,83 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,44% í nóvember og nam meðaldagsveltan 812 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,37% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 694 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [3.160 mln nom], ISLA CBI 24 [1.680 mln nom], ISLA CBI 30 [920 mln nom], LBANK CBI 24 [400 mln nom], LBANK CBI 28 [1.040 mln nom], ARION CB 19 [200 mln nom], ARION CB 22 [220 mln nom], LBANK CB 23 [1.240 mln nom], LSS150434 [1.258 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14,9 ma. í mánuðinum og er 408,7 milljarðar. Líftími vísitölunnar stóð í stað milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,7 ár og verðtryggingarhlutfall 65,1%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-NOV-2017 

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,0% í nóvember og nam meðaldagsveltan 2,1 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 8 ma. í mánuðinum og er 760 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í GRND (+10,8%) og REGINN (+9,7%) en mest lækkun var á bréfum EIM (-8,3%) og MARL (-7,1%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í október 2017

MOM-HLBR-NOV-2017

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein