Fréttir



Vísitölur GAMMA mars 2018

3.4.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,75% í febrúar og nam meðaldagsveltan 5,1 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 23,4 milljarða og er 2.822 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD_2

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,78% í mars og nam meðal dagsveltan 2,3 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,10% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,10%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 21,5 ma. og er nú 1.629 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,08 og er 7,68 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,88% í mars og nam meðaldagsveltan 787 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,95% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 665 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.120 mln nom], ARION CBI 48 [720 mln nom], ISLA CBI 24 [3.920 mln nom], ISLA CBI 30 [3.680 mln nom], LBANK CBI 24 [480 mln nom], LBANK CBI 28 [1.900 mln nom], ARION CB 22 [1.000 mln nom], LSS150434 [1.390 mln nom], OR090524 [755 mln nom] og OR090546 [820 mln nom]. Auk þess fékk LSS151155 [13.352 mln nom] viðskiptavakt í mánuðinum og bætist við vísitöluna.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 16,3 ma. í mánuðinum og er 461,7 milljarðar. Líftími vísitölunnar stóð í stað milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar lækkaði milli mánaða og er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 76,2%. 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-MAR-2018

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,6% í mars og nam meðaldagsveltan 2,0 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 5 ma. í mánuðinum og er 740 ma. 

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í VÍS (+8,9%) og Símanum (+8,9%) en mest lækkun var á bréfum Granda (-10,9%), og Icelandair (-8,3%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í mars 2018

MOM-HLBR-MAR-2018

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein