Fréttir



Vísitölur GAMMA júní 2018

2.7.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,06% í júní og nam meðaldagsveltan 3,8 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 27,6 milljarða og er 2.856 milljarðar. 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

 Ytd-visitolur-jun-2018

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,23% í júní og nam meðal dagsveltan 1,9 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,40% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,15%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 21,7 ma. og er nú 1.589 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,02 og er 7,65 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,41% í júní og nam meðaldagsveltan 541 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,58% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 439 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.040 mln nom], ARION CBI 48 [300 mln nom], ISLA CBI 24 [1.160 mln nom], ISLA CBI 30 [640 mln nom], LBANK CBI 24 [2.300 mln nom], LBANK CBI 28 [2.100 mln nom], ARION CB 22 [1.020 mln nom], ISLA CB 23 [200 mln nom], LBANK CB 23 [240 mln nom], LSS150434 [600 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 0,5 ma. í mánuðinum og er 498,7 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði lítillega milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar lækkaði einnig milli mánaða og er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 77,7%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

 Skipting-ft-jun-2018

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í júní og nam meðaldagsveltan 1,4 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 47 ma. í mánuðinum og er 768 ma.

Mánaðmótin júní-júlí bætast Heimavellir, Sjóvá og TM við hlutabréfavísitöluna.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í EIM (+14,5%) og ICEAIR (+9,2%) en mest lækkun var á bréfum REGINN (-7,1%) og EIK (-6,4%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júní 2018

Mom-hlbr-jun-2018

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á netfangið gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein