Fréttir



Vísitölur GAMMA júní 2017

3.7.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 0,08% í júní og nam meðaldagsveltan 5,9 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 31 milljarð og er 2.730 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

1
Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,85% í júní og nam meðal dagsveltan 3,8 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 1,03% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,46%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkar um 9,4 ma. og er nú 1.600 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,06 og er 8,01 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,8% í júní og nam meðaldagsveltan 546 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,8% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 478 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [1.580 mln nom], ISLA CBI 22 [400 mln nom], ISLA CBI 30 [1.720 mln nom], LBANK CBI 24 [840 mln nom], LBANK CBI 28 [540 mln nom], ARION CB 22 [800 mln nom], RVK 53 1 [2.620 mln nom] og RVKN 35 1 [800 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14 ma. í mánuðinum og er 359 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar lítillega milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,5 ár og verðtryggingarhlutfall 65,9%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

2Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,3% í júní og nam meðaldagsveltan 2,2 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 18,5 ma. í mánuðinum og er 787 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Granda (+13,7%) og ICEAIR (+8,1%) en mest lækkun var á bréfum Haga (-17,1%) og EIK (-7,3%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júní 2017

 

3

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein