Vísitölur GAMMA janúar 2018
Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,68% í janúar og nam meðaldagsveltan 6,5 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 53 milljarða og er 2.794 milljarðar.
Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index
Einblöðungur GAMMA: Equity Index
Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index
Gengi vísitalna frá áramótum
Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,04% í janúar og nam meðal dagsveltan 3,5 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,11% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,13%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 9,3 ma. og er nú 1.628 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,07 og er 7,74 ár.
Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,30% í janúar og nam meðaldagsveltan 517 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,05% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 440 milljónum.
Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 48 [2.280 mln nom], ISLA CBI 24 [540 mln nom], ISLA CBI 30 [1.320 mln nom], LBANK CBI 24 [1.620 mln nom], LBANK CBI 28 [1.200 mln nom], ARION CB 22 [200 mln nom], AL260148 [6.040 mln nom], LSS150434 [900 mln nom].
Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14,2 ma. í mánuðinum og er 423,2 milljarðar. Líftími vísitölunnar stóð í stað milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 65,5%.
Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA
Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 6,3% í janúar og nam meðaldagsveltan 2,4 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 44 ma. í mánuðinum og er 743 ma.
Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Högum (+15,5%) og N1 (+11,8%) en eina lækkunin var á bréfum EIM (-3,6%).
Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í janúar 2017
Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita í tölvupósti á gamma@gamma.is eða í síma 519-3300 .