Fréttir



Vísitölur GAMMA febrúar 2018

2.3.2018 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í febrúar og nam meðaldagsveltan 7,2 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 1 milljarð og er 2.798 milljarðar. 

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-FEB-2018

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,02% í febrúar og nam meðal dagsveltan 3,3 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 0,17% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,42%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 20,4 ma. og er nú 1.607 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,02 og er 7,76 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,08% í febrúar og nam meðaldagsveltan 732 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,27% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 696 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 48 [500 mln nom], LBANK CBI 24 [1.160 mln nom], LBANK CBI 28 [1.720 mln nom], ARION CB 22 [920 mln nom] og LSS150434 [1.870 mln nom]. Einnig fengu flokkarnir OR090524 [3.143 mln nom] og OR090546 [16.401 mln nom] viðskiptavakt í mánuðinum.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 22,1 ma. í mánuðinum og er 445,4 milljarðar. Þessa hækkun má að hluta til rekja til OR bréfanna sem fengu viðskiptavakt í mánuðinum og bættust við vísitöluna. Líftími vísitölunnar hækkar milli mánaða og er 6,9 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar hækkaði einnig milli mánaða og er 5,6 ár og verðtryggingarhlutfall 75,7%.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-FEB-2018[1]

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í febrúar og nam meðaldagsveltan 2,8 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 3 ma. í mánuðinum og er 744 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Marel (+6,4%) og Högum (+5,4%) en mest lækkun var á bréfum Skeljungs (-6,4%), Reita (-6,1%) og Reginns (-6,1%).

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í febrúar 2018

MOM-HLBR-FEB-2018[1]

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur á gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

Senda grein