Fréttir



Vísitölur GAMMA apríl 2017

4.5.2017 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 2,9% í apríl og nam meðaldagsveltan 5,4 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 78 milljarða og er 2.716 milljarðar.

Einblöðungur GAMMA: Government Bond Index

Einblöðungur GAMMA: Equity Index

Einblöðungur GAMMA: Corporate Bond Index  

Gengi vísitalna frá áramótum

YTD-visitolur-APR-2017[1]

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,7% í apríl og nam meðal dagsveltan 2,7 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 2,2% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,5%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 19,6 ma. og er nú 1.581 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,08 og er 7,98 ár.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,9% í apríl og nam meðaldagsveltan 556 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,9% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 413 milljónum.

Í mánuðinum voru gefin út bréf í flokkum ARION CBI 25 [2.740 mln nom], ISLA CBI 22 [4.660 mln nom], ISLA CBI 26 [3.660 mln nom], LBANK CBI 22 [640 mln nom], LBANK CBI 28 [580 mln nom], ARION CB 19 [2.540 mln nom], ISLA CB 19 [1.320 mln nom], LBANK CB 19 [120 mln nom], LBANK CB 21 [580 mln nom], RVKN 35 1 [630 mln nom].

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14 ma. í mánuðinum og er 317 milljarðar. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur milli mánaða og er 6,7 ár. Líftími sértryggðu undirvísitölunnar er 5,4 ár og verðtryggingarhlutfall 62,5%. 

 

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Skipting-FT-APR-2017[1]

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 6,0% í apríl og nam meðaldagsveltan 2,3 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 46,3 ma. í mánuðinum og er 818 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í Högum (+17,3%) og Símanum (+10,5%) en mest lækkun var í bréfum Granda (-0,5%) .

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í mars 2017

 MOM-HLBR-APR-2017[1]

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma(at)gamma.is eða í síma 519-3300 .

 

Senda grein