Fréttir



Veita 90% lán fyrir fyrstu kaupendur

31.7.2017 Starfsemi

Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar í viðtali við Viðskiptablaðið um helgina.

5750e660ac372c776f1f62dc4159456c

Framtíðin er sérhæfður lánasjóður sem býður meðal annars upp á húsnæðislán. Nýjar reglur FME kveða á um að hámark veðsetningahlutfalls af markaðsverði fasteignar megi einungis vera 85 prósent eða 90 prósent fyrir fyrstu kaupendur. Áður veitti lánasjóðurinn til að mynda 90 prósenta lán fyrir alla. Hrólfur Andri Tómasson, framkvæmdastjóri Framtíð­arinnar segir:

„Í sumar vorum við að bjóða þetta fyrir alla, en nú getum við einungis farið upp í 85%, fyrir þá sem eru ekki fyrstu kaupendur. Við höfum þó aðallega verið að horfa til þeirra sem eru að kaupa fasteign í fyrsta skipti. Það eru til dæmis margir ungir einstaklingar sem eru nýkomnir úr skóla og eru með góðar tekjur í góðum störfum, en eru ekki með margar milljónir inni á banka. Þetta auðveldar þeim að koma inn á markaðinn sem vantar eigið fé,“ segir hann.

„Yfirvöld eru annars vegar að passa upp á áhættu í bankakerfinu og hins vegar að passa upp á neytendurna sem taka lánin. En þessi hluti sem varðar áhættu í bankakerfinu á síður við um okkur þar sem við erum lítill aðili og erum ekki banki,“ bætir hann við að lokum.

- Fréttin birtist á vef Viðskiptablaðsins þann 30. júlí 2017. 

Senda grein