Fréttir



Undrabörn og ofurmeistarar á Reykjavíkurskákmótinu

21.3.2017 Samfélagsmál

GAMMA Reykjavíkurskákmótið 2017 verður dagana 19. til 26. apríl næstkomandi. Mótið verður hið sterkasta og gæti orðið fjölmennasta í rúmlega hálfrar aldar sögu mótsins. 

Reykjavíkurskákmótið 2017 er hið sterkasta í rúmlega hálfrar aldar sögu mótsins og gæti ennfremur orðið það fjölmennasta. Þegar er 251 skákmaður skráður til leiks frá 46 löndum. Þrír ofurstórmeistarar tefla, nokkrar af sterkustu skákkonum heims, auk undrabarna og goðsagna úr sögu mótsins.

Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir að fjöldametið frá því árið 2015 sé í verulegri hættu. Eins og áður sagði er 251 skákmaður skráður til leiks. Þar af eru 69 Íslendingar. Fjölmennastir gestanna eru Indverjar sem eru 29 talsins. Í næstu sætum eru Bandaríkin en þaðan koma tuttugu skákmenn, þrettán frá Kanada en einnig mæta stórir hópar Hollendinga, Svía, Englendinga og Þjóðverja.

„Mótið, sem stendur dagana 19. til 26. apríl, hefur fengið mikla athygli erlendis og var nýlega kosið næstbesta opna skákmótið af Samtökum atvinnuskákmanna en mörg hundruð alþjóðleg skákmót eru haldin ár hvert. Reykjavíkurskákmótið hefur á þessari rúmu hálfu öld unnið sér orðspor sem einstakt skákmót sem íslensk skákhreyfing er ákaflega stolt af,“ segir Gunnar.

 

Meðal skráðra keppenda er 31 stórmeistari sem er umtalsverð fjölgun frá síðustu árum og enn á eftir að bætast eitthvað í þann hóp, ef að líkum lætur. Stigahæsti keppandi mótsins er Anish Giri, einn allra sterkasti skákmaður heims, sem hefur 2.769 skákstig. Hann er stigahæsti skákmaður í sögu Reykjavíkurskákmótanna. Tveir aðrir keppendur hafa meira en 2.700 skákstig, sem oft er notað til að greina ofurstórmeistara frá þó mjög sterkum kollegum þeirra. Það er Rússinn Dmitry Andreikin og Georgíumaðurinn Baadur Jobava, sem þykir einn frumlegasti og skemmtilegasti skákmaður heims.
„Meðal keppenda nú er Rameshbabu Praggnanandhaa, sem er nafn sem er rétt er að leggja á minnið, ef það er á annað borð hægt. Sá er aðeins 11 ára og þykir líklegur til að slá met Sergey Karjakin sem yngsti stórmeistari allra tíma,“ segir Gunnar sem bætir við að á mótinu megi einnig finna sterkustu skákkonur heims. Þeirra á meðal er hin indverska Hariku Dronavalli sem er á topp 10 í heiminum og landa hennar Tanja Sadchev sem sló eftirminnilega í gegn á Reykjavíkurskákmótinu í fyrra.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu

*Fréttin birtist á vísir.is þann 18. mars 2017: www.visir.is/undraborn-og-ofurmeistarar-a-reykjavikurskakmotinu/  

 

1478717025_537346_1478717153_noticia_normal

Rameshbabu Praggnanandhaa er hugsanlega efnilegasti skákmaður allra tíma og teflir á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu

Anish-Giri-e1447587806677

Anish Giri er einn sterkasti skákmaður heimsog jafnframt stigahæsti skákmaður í sögu Reykjavíkurskákmótanna.

Senda grein