Fréttir



Tímamót hjá GAMMA: EQUITY FUND

28.4.2017 Starfsemi

GAMMA Equity Fund var stofnaður fyrir fjórum árum síðan og hefur gengi sjóðsins nú tvöfaldast. 

GAMMA: EQUITY Fund var stofnaður 25.mars árið 2013 og fagnaði 4 ára afmæli á dögunum. Gengi sjóðsins hefur nú tvöfaldast frá stofnun og skilað hlutdeildarskírteinishöfum um 18,6% árlegri ávöxtun frá stofnun*. Markmið sjóðsins er að leitast eftir að ná fram umframávöxtun á innlendum hlutabréfamarkaði með virkri stýringu og gera þannig betur en markaðurinn í heild. Þá skiptir ekki síður miklu máli að geta brugðist hratt við breyttum aðstæðum á markaði og stýrt áhættu á skynsaman hátt.
 
Fjárfestingastefna sjóðsins til lengri tíma er ákvörðuð með svokallaðri „top down“ aðferðafræði sem gengur út frá að greina fyrst horfur í hagkerfinu í heild og vinna svo áfram með niðurstöður þeirrar greiningar niður á hvert fyrirtæki á markaði. Þannig reyna sjóðsstjórar að greina undirverðlögð fyrirtæki frá yfirverðlögðum. Til skemmri tíma reyna sjóðsstjórar að kortleggja framboð og eftirspurn framundan en ójafnvægi þar á er ráðandi þáttur í verðlagningu til skamms tíma og geta því myndast skammtímatækifæri ef sú staða kemur upp.

Equity4ara1

 

GAMMA: EQUITY FUND er fjárfestingarsjóður, skv. lögum 128/2011 um verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, sem fjárfestir að meginhluta í skráðum hlutabréfum. Sjóðurinn hefur einnig heimild til að fjárfesta í óskráðum hlutabréfum, innlánum fjármálafyrirtækja, skuldabréfum með ríkisábyrgð og nýta sér afleiðusamninga til áhættustýringar eða sem hluta af fjárfestingarstefnu.

Sjóðstjórar GAMMA: EQUITY FUND eru Jóhann Gísli Jóhannesson og Valdimar Ármann. Jóhann starfaði áður sem sjóðsstjóri innlendra hlutabréfa hjá Íslandssjóðum frá 2013. Þá hefur einnig sinnt stundakennslu við hagfræðideild HÍ þar á meðal í afleiðukúrs frá árinu 2013. Jóhann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og lýkur meistaranámi í fjármálum við sama skóla nú í vor. Valdimar, hagfræðingur og fjármálaverkfræðingur, starfaði áður hjá ABN AMRO í London við verðbólgutengdar afurðir frá 2003-2006 og síðan í New York frá 2006-2008 hjá sama banka, og síðast RBS sem Vice President, Head of Inflation Structuring USA. Valdimar sinnir einnig stundakennslu í MSc. Fjármálahagfræði við HÍ sem aðjúnkt.

Equity4ara10

 

 

Tölur hér að ofan vísa til fortíðar og athygli er vakin á því að söguleg ávöxtun gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun. Almennt fylgir áhætta fjárfestingu í fjárfestingarsjóðum og eignarhlutdeild getur rýrnað, aukist eða staðið í stað. 

Umfjöllun þessi felur ekki í sér fjárfestingarráðgjöf eða tilboð eða hvatningu um að eiga viðskipti með verðbréf eða hlutdeildarskírteini. GAMMA Capital Management hf. er rekstrarfélag Fjárfestingarsjóðs GAMMA. GAMMA: Equity Fund er deild í fjárfestingarsjóði samkvæmt lögum nr. 128/2011. Nánari upplýsingar um áhættu og fjárfestingar má finna í útboðslýsingu, reglum og lykilupplýsingum (KIID), sem nálgast má á heimasíðu GAMMA, www.gamma.is eða skrifstofu GAMMA við Garðastræti 37 í Reykjavík. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér þessar upplýsingar nánar. Ávöxtunartölur sjóðs eru fengnar af vefsvæðinu Keldan.is. Kaupum á hlutdeildarskírteinum sjóðsins fylgir veruleghætta á verðsveiflum en áhættumælikvarðinn getur breyst án fyrirvara.

*Ávöxtun frá upphafi færð á ársgrundvöll.

 

Senda grein