Fréttir



Skeljungur bætist við Hlutabréfavísitölu GAMMA

27.6.2017 Vísitölur

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA tekur breytingum um mánaðamótin, en frá og með 1. júlí 2017 bætist Skeljungur við vísitöluna.

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA tekur breytingum um mánaðamótin, en frá og með 1. júlí 2017 bætist Skeljungur við vísitöluna. Eftir breytinguna inniheldur vísitalan því 15 fyrirtæki: Eik, Eimskip, Haga, Icelandair, Marel, Reginn,Skeljung, Símann, TM, VÍS, Vodafone, N1, Reiti, Sjóvá og Granda. Áætluð aukning í markaðsvirði vísitölunnar vegna viðbótarinnar er um 12,7 milljarðar.

Áætluð samsetning eftir endurstillingu

Hlutabrefavtjun

Samsetning vísitölunnar tekur mið af veltumestu fyrirtækjunum, þar sem gjaldgengum fyrirtækjum er raðað upp eftir veltu seinustu sex mánaða og þau síðan valin inn í vísitöluna hvert á fætur öðru þar til 90% af flotleiðréttu markaðsvirði allra gjaldgengra fyrirtækja er komið inn í vísitöluna. Gjaldgeng fyrirtæki teljast þau fyrirtæki sem eru með a.m.k. 10% frjálst flot, gefa út hlutabréf sín í krónum og eru skráð á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland. Næsta endurstilling á sér stað mánaðamótin desember-janúar 2018.

Hægt er að óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti með því að láta vita á gamma(at)gamma.is eða síma 519-3300 .

Vísitölur GAMMA ná yfir hlutabréf, ríkisskuldabréf og skuldabréf fyrirtækja sem skráð eru í NASDAQ OMX Iceland, eða íslensku kauphöllina. Vísitölurnar eru sendar út endurgjaldslaust í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda. Söguleg gögn þeirra má nálgast á Datamarket og Bloomberg og er notkun þeirra heimil gegn því að heimildar sé getið. Allar nánari upplýsingar um Vísitölur GAMMA má nálgast á heimasíðu GAMMA hér: http://www.gamma.is/visitolur/

 

Senda grein