Fréttir



Vísitölur GAMMA júní 2016

1.7.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,1% í júní og nam meðaldagsveltan 6,7 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan lækkaði um 0,8% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,5% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,2%.

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,1% í júní og nam meðaldagsveltan 6,7 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 51 milljarð og er 2.382 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, lækkaði um 0,8% í júní og nam meðal dagsveltan 4,7 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 0,7% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,8%. Gefin voru út bréf í flokki RB17 [920 mln nom] sem hækkar hlutfall flokksins í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 30 ma. í mánuðinum og er nú 1.406 ma. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur milli mánaða og er 7,8 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,5% í júní og nam meðaldagsveltan 313 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,3% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 229 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [440 mln nom], ARION CBI 29 [780 mln nom], ISLA CBI 26 [980 mln nom] og LBANK CBI 22 [980 mln nom] sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. Jafnframt kemur skuldabréfaflokkurinn RVKN 35 1 nýr inn í vísitöluna um mánaðamótin þar sem tekin hefur verið upp viðskiptavakt með flokkinn. ISLA CBI 16 dettur út úr vísitölunni um mánaðamótin þar sem styttra en 6 mánuðir eru í lokagjalddaga flokksins.  

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 2 ma. í mánuðinum og er 246 milljarðar. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur og er 7,2 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,8 ár og verðtryggingarhlutfall 68,0%. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 2,2% í júní og nam meðaldagsveltan 1,8 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 22 ma. í mánuðinum og er 730 ma.

Í mánuðinum hækkuðu bréf mest í N1 (+3,1%) og Högum (+3,1%) en mest lækkun var í bréfum Granda  (-13,8%) og Icelandair (-5,9%).

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júní 2016

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein