Fréttir



Vísitölur GAMMA mars 2016

1.4.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,1% í mars og nam meðaldagsveltan 7,5 milljörðum. Ríkistryggða skuldabréfavísitalan hækkaði um 0,6% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,5% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,2%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,1% í mars og nam meðaldagsveltan 7,5 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 31 milljarð og er 2.517 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,6% í mars og nam meðal dagsveltan 5,1 milljarði. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,5% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 0,8%. Gefin voru út bréf í flokki RB20 [5.170 mln nom] sem hækkar hlutfall hans í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14,2 ma. í mánuðinum og er nú 1.507 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,2 og er 7,6 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,5% í mars og nam meðaldagsveltan 611 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,6% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 549 milljónum.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 (1.000 mln nom), ARION CBI 29 (720 mln nom), ISLA CBI 22 (400 mln nom), ISLA CBI 26 (940 mln nom), LBANK CBI 22 (4.100 mln nom), ARION CB 22 (1.540 mln nom) og LBANK CB 19 (660 mln nom), LSS34 (250 mln nom) og RVK53 (290 mln nom) sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 10 ma. í mánuðinum og er 241 milljarður. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 7,3 ár. Líftími sértryggðu vísitölunnar er 5,7 ár og verðtryggingarhlutfall 68,6%. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 2,2% í mars og nam meðaldagsveltan 1,8 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 6 ma. í mánuðinum og er 769 ma.

Að teknu tilliti til arðgreiðslna hækkuðu bréf mest í N1 (+10,7%) og Reginn (+9,2%) en mest lækkun var í bréfum VÍS (-3,8%) og Vodafone (-3,7%).

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í mars

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein