Fréttir



Vísitölur GAMMA febrúar 2016

1.3.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í febrúar og nam meðaldagsveltan 7,3 milljörðum. Ríkistryggða vísitalan hækkaði um 1,0% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,7% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,9%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í febrúar og nam meðaldagsveltan 7,3 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 33 milljarða og eru 2.487 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 1,0% í febrúar og nam meðal dagsveltan 4,3 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 0,7% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 1,4%. Gefin voru út bréf í flokki RB17 [2.177 mln nom] sem hækkar hlutfall hans í vísitölunni og markaðsvirði vísitölunnar. Á móti voru greiddar afborganir og/eða vextir í HFF24, RB17, RB19 og RB20 sem lækkar hlutfall þeirra og markaðsvirði vísitölunnar.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 5,8 ma. í mánuðinum og er nú 1.493 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 7,8 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,7% í febrúar og nam meðaldagsveltan 499 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,8% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 451 milljón.

Gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 (1.000 mln nom), ARION CBI 29 (1.520 mln nom), ISLA CBI 22 (640 mln nom), ISLA CBI 26 (2.340 mln nom), ARION CB 22 (3.280 mln nom) og LBANK CB 19 (2.000 mln nom), LSS34 (398 mln nom) og RVK53 (240 mln nom) sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 10,7 ma. í mánuðinum og er 231 milljarður. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 7,4 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 3,9% í febrúar og nam meðaldagsveltan 2,5 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 29 ma. í mánuðinum og er 763 ma. Mest hækkuðu bréf í N1 (+26,0%) og Sjóvá (+10,6%) en mest lækkun var í bréfum Símans  (-8,4%) og í Eik (-3,4%). Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í febrúar

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein