Fréttir



Vísitölur GAMMA janúar 2016

1.2.2016 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,4% í janúar og nam meðaldagsveltan 10,4 milljörðum. Ríkistryggða vísitalan lækkaði um 0,7% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,1% og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,3%.

Markaðsvísitala GAMMA lækkaði um 1,4% í janúar og nam meðaldagsveltan 10,4 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 29 milljarða og eru 2.453 milljarðar.

Gengi vísitalna í janúar

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, lækkaði um 0,7% í janúar og nam meðal dagsveltan 6,9 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 0,8% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 0,6%. Gefin voru út bréf í flokki RB17 [3.940 mln nom], RB20 [3.605 mln nom] og RB31 [602 mln nom], sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 8 ma. og er nú 1.499 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 7,5 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa lækkaði um 0,1% í janúar og nam meðaldagsveltan 596 milljónum, þar af lækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,2% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 544 milljónum.

Gefin voru út bréfum í flokkum ARION CBI 21 [340 mln nom], ISLA CBI 22 [540 mln nom], ARION CB 22 [2.980 mln nom] og ISLA CB 19 [800 mln nom], sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.

Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 4 ma. í mánuðinum og er 220 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 7,5 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 3,3% í janúar og nam meðaldagsveltan 2,9 ma. Markaðsverðmæti vísitölunnar lækkaði um 25 ma. í mánuðinum og er 734 ma. Eik (+7,4%) og Reginn (5,4%) hækkuðu mest í mánuðinum en mest lækkuðu bréf í N1 (-9,8%) og TM (-8,7%). Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í janúar

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein