Fréttir



Vísitölur GAMMA í október 2015

2.11.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 4,4% í október og nam meðaldagsveltan 10,7 milljörðum. Ríkistryggða vísitalan hækkaði um 2,5% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,7% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 9,8%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 4,4% í október og nam meðaldagsveltan 10,7 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 128 milljarða og eru 2.448 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 2,5% í október og nam meðal dagsveltan 7,8 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 2,5% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 2,6%. Gefin voru út bréf í flokki RIKB25 [5.040 mln nom] sem hækkar hlutfall hans í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,1 prósentustig í 33,5%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 27 ma. og er nú 1.552 ma. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,1 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,7% í október og nam meðaldagsveltan 591 milljón, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 2,3% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 453 milljónum, sem er 529% hækkun frá septembermánuði.

Mikið var um útgáfur á uppgjöri í mánuðinum, en gefin voru út bréf í flokkum ARION CBI 21 [2.280 mln nom], ARION CBI 29 [3.900 mln nom], ISLA CBI 26 [860 mln nom], LBANK CBI 22 [1.880 mln nom], ARION CB 22 [4.300 mln nom], ISLA CB 19 [860 mln nom], LBANK CB 19 [1.120 mln nom] og LSS34 [550 mln nom]. Þar að auki eru tvö ný bréf tekin inn í vísitöluna þessi mánaðamót, en þau eru ISLA CBI 22 [3.780 mln nom] og ISLA CB 23 [3.040 mln nom].

Hlutfall verðtryggðra bréfa lækkaði um 3,2 prósentustig og er 86,5% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 26 ma. milli mánaða og er um 212 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 7,8 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 9,8% í október og nam meðaldagsveltan 2,3 ma. Mest hækkuðu bréf í TM (+17,0%) og Icelandair (+15,0%). Ekkert bréf lækkaði í mánuðinum. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í október

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein