Fréttir



Vísitölur GAMMA í september 2015

2.10.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,5% í september og nam meðaldagsveltan 11,9 milljörðum. Ríkistryggða vísitalan stóð í stað í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 5,7%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,5% í september og nam meðaldagsveltan 11,9 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 25 milljarða og eru 2.320 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um stóð í stað í september og nam meðal dagsveltan 9,8 milljörðum. Verðtryggða vísitalan lækkaði um 1,1% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 2,3%. Gefin voru út bréf í flokki RIKB20 sem hækkar hlutfall hans í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,9 prósentustig í 33,4%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 1,5 ma. og er nú 1.525 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,2 og er 8,0 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í september og nam meðaldagsveltan 183 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 0,2% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 72 milljónum. Nýtt bréf var tekið inn í vísitöluna um mánaðamótin, óverðtryggt bréf frá Arion banka ARION CB 22. Bréfið er 2,3% af heildarvísitölunni og 5,2% af sértryggðu undirvísitölunni. Hlutfall verðtryggðra bréfa lækkaði um 3,3 prósentustig og er 89,7% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 10 ma. milli mánaða og er um 186 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,2 og er 7,9 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 5,7% í september og nam meðaldagsveltan 1,6 ma. Mest hækkuðu bréf í Granda (+9,0%) og Marel (+8,2%). Mest lækkuðu bréf í Sjóvá (-2,4%). Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í september

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein