Fréttir



Endurstilling Hlutabréfavísitölu GAMMA

2.10.2015 Vísitölur

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA hélst óbreytt við endurstillingu um mánaðamótin. Vísitalan er endurstillt ársfjórðungslega.

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA hélst óbreytt við endurstillingu síðustu mánaðamót. Vísitalan inniheldur því áfram 13 fyrirtæki: Eik, Eimskip, Haga, Icelandair, Marel, Reginn, TM, VÍS, Vodafone, N1, Reiti, Sjóvá og Granda. 

Samsetning Hlutabréfavísitölu GAMMA október 2015

Samsetning vísitölunnar tekur mið af veltumestu fyrirtækjunum, þar sem gjaldgengum fyrirtækjum er raðað upp eftir veltu seinustu sex mánaða og þau síðan valin inn í vísitöluna hvert á fætur öðru þar til að minnsta kosti 90% af flotleiðréttu markaðsvirði allra gjaldgengra fyrirtækja er komið inn í vísitöluna. Gjaldgeng fyrirtæki teljast þau fyrirtæki sem eru með a.m.k. 10% frjálst flot, gefa út hlutabréf sín í krónum og eru skráð á Aðalmarkað NASDAQ OMX Iceland. Næsta endurstilling á sér stað áramótin 2015/2016 og þar mun Síminn koma til greina inn í vísitöluna.

Hægt er að óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti með því að láta vita á gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Vísitölur GAMMA ná yfir hlutabréf, ríkisskuldabréf og skuldabréf fyrirtækja sem skráð eru í NASDAQ OMX Iceland, eða íslensku kauphöllina. Vísitölurnar eru sendar út endurgjaldslaust í lok hvers viðskiptadags til áskrifenda. Söguleg gögn þeirra má nálgast á Datamarket og Bloomberg og er notkun þeirra heimil gegn því að heimildar sé getið. Allar nánari upplýsingar um Vísitölur GAMMA má nálgast á heimasíðu GAMMA hér: http://www.gamma.is/visitolur/

Senda grein