Fréttir



Vísitölur GAMMA júlí 2015

4.8.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 3,4% í júlí og nam meðaldagsveltan 7,5 milljörðum. Ríkistryggða vísitalan hækkaði um 3,1% í mánuðinum, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,8% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 4,6%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 3,4% í júlí og nam meðaldagsveltan 7,5 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 74 milljarða og eru 2.262 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 3,1% í júlí og nam meðal dagsveltan 6,4 milljörðum. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 3,5% á meðan sú óverðtryggða hækkaði um 2,3%. Gefin voru út bréf í flokkum RIKB17 og RIKB20 sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni. Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,1 prósentustig í 31,5%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 53 ma. og er nú 1.512 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,2 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,8% í júlí og nam meðaldagsveltan 100 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,8% og nam meðaldagsveltan 53 milljónum.  Gefin voru út bréf í LSS34 í mánuðinum, sem hækkar hlutfall flokksins innan vísitölunnar. Hlutfall verðtryggðra bréfa hækkar lítillega og er 93% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar á milli mánaða um 3 milljarða og er samtals um 177 milljarðar. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 8,0 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 4,6% í júlí og nam meðaldagsveltan 1,1 milljarði. Mest hækkuðu bréf í Sjóvá (+11,9%) og Marel (+8,6%). Mest lækkuðu bréf í Granda (-2,1%) og TM (-0,7%). Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar í júlí

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast sendið okkur póst á netfangið: gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein