Fréttir



Vísitölur GAMMA mars 2015

8.4.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1% í mars, Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,9%, Hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,8% og loks hækkaði Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa um 1,7%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,0% í mars og nam meðaldagsveltan 9,1 milljarði. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 11 milljarða og eru 2.079 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

 

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,9% í mars. Verðtryggða vísitalan hækkaði um 3% á meðan sú óverðtryggða lækkaði um 3,3%. Engar útgáfur voru í vísitölunni í mánuðinum. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði um 1,3 prósentustig í 31,0%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 14 ma. og er nú 1.472 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 8,2 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 1,7% í mars og nam meðaldagsveltan 219 milljónum, þar af hækkaði sértryggða vísitalan GAMMAcb um 1,4% í mánuðinum og nam meðaldagsveltan 71 milljón.  Gefin voru út bréf í LSS34 (315 mln. nom), ISLA CB 19 (460 mln. nom), ISLA CBI 24 (540 mln. nom), ARION CBI 29 (2.120 mln. nom) og ARION CBI 21 (1.280 mln. nom). Hlutfall verðtryggðra bréfa helst óbreytt í 89% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar á milli mánaða um 8,1 milljarð og er samtals um 163 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkar um 0,1 og er 8,0 ár.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,8% í mars og nam meðaldagsveltan 900 milljónum. Mest hækkuðu bréf í Reginn (+6,5%) og Marel (+3,9%). Mest lækkuðu bréf í VÍS (-5,3%) og Högum (-4,2%). Hér er átt við heildarávöxtun, þ.e. tekið er tillit til arðgreiðslna – sama gildir um grafið hér að neðan.

Ávöxtun einstakra bréfa innan vísitölunnar (auk Össurar) frá áramótum

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein