Fréttir



Vísitölur GAMMA janúar 2015

3.2.2015 Vísitölur

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í janúar, þar af hækkaði Skuldabréfavísitala GAMMA um 0,9%, Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% og Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 5,4%.

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 1,8% í janúar og nam meðaldagsveltan 5,4 milljörðum. Markaðsverðmæti vísitölunnar hækkaði um 40 milljarða og er 2.032 milljarðar.

Gengi vísitalna frá áramótum

 

Skuldabréfavísitala GAMMA, GAMMA:GBI, hækkaði um 0,9% í janúar. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 1,3% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi lækkaði lítillega. Gefin voru út bréf í flokkum RB20 og RB31 í mánuðinum. Hlutfall óverðtryggðra bréfa lækkaði þó um 0,1 prósentustig og er nú 32,3%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 16 ma. og er nú 1.436 ma. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur og er 8,1 ár. Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í janúar og nam meðaldagsveltan 67 m.kr. Gefin voru út bréf í flokkum LBANK CB 19, LSS150434 og RVK 53 1. Hlutfall verðtryggðra bréfa lækkar um 1 prósentustig og er 89% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar á milli mánaða um 12 milljarða og er samtals 155 milljarðar. Líftími vísitölunnar hækkaði um 0,1 ár og er 7,8 ár.

Skipting fyrirtækjaskuldabréfavísitölu GAMMA

Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði um 5,4% í janúar og nam meðaldagsveltan 1,1 ma. Mest hækkuðu bréf í Granda (+16,7%) og Voice (+8,6%). Einu félögin sem lækkuðu í vísitölunni í mánuðinum voru Sjóvá (-1,5%) og Eimskip (-0,2%).

Gengi hlutabréfa YTD 2015 (Hlutabréfavísitala GAMMA + Össur)

Þeir sem óska eftir að fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

 

Senda grein