Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA ágúst 2014

1.9.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok september, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir september 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 0,9% í ágúst. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 0,7% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,4%. Meðaldagsvelta GBI var 5 ma., þar af 1,2 ma. með verðtryggt og 3,8 ma. með óverðtryggt.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði um 0,4 prósentustig og er 31,2%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 2 ma. og er nú 1.401 ma. Líftími vísitölunnar helst óbreyttur og er 8,1 ár. Engar nýjar útgáfur voru í mánuðinum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein