Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA júlí 2014

1.7.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok júní, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir júlí 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, lækkaði um 1,7% í júní. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 1,7% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi lækkaði um 1,6%. Meðaldagsvelta GBI var 6,6 ma., þar af 1,4 ma. með verðtryggt og 5,2 ma. með óverðtryggt.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa stóð í stað og er 30,7%. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni lækkaði um 43 ma. og er nú 1.391 ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,1 og er 8,2 ár. Engar nýjar útgáfur voru í mánuðinum.

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi senda daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein