Fréttir



Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa og Hlutabréfavísitala GAMMA

2.6.2014 Vísitölur

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í maí. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,4% yfir sama tímabil.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í maí og meðaldagsveltan var 128 milljónir.

Gefin voru út bréf í flokki LSS34 sem hækkar hlutfall flokksins í vísitölunni. Hlutfall verðtryggðra bréfa er óbreytt milli mánaða og er 89% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar lítillega í mánuðinum og er nú 133 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 8,1 ár.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,4% í maí og nam meðaldagsveltan 900 milljónum. Einu fyrirtækin sem hækkuðu í mánuðinum voru Hagar (+5,9%) og Icelandair (+2,6%). Mest lækkuðu bréf í TM (-8,5%) og Eimskip (-7,8%). Vísitalan er endurstillt ársfjórðungslega og mun næsta endurstilling eiga sér stað næstu mánaðamót samkvæmt þeirri aðferðafræði sem birt er á http://www.gamma.is/visitolur, en þá munu meðal annars Sjóvá og Grandi koma til greina í vísitöluna.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.

Senda grein