Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA maí 2014

5.5.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok apríl, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir maí 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, hækkaði um 1,9% í apríl. Verðtryggða vísitalan GAMMAi hækkaði um 2,4% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 0,7%. Meðaldagsvelta GBI var 4,6 ma., þar af 1,3 ma. með verðtryggt og 3,4 ma. með óverðtryggt.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 30,9% sem er hækkun um 0,3 prósentustig frá mars mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 23 ma. og er nú 1.426 ma. Líftími vísitölunnar hækkaði um 0,1 og er 8,4 ár.
 
Gefin voru út bréf í flokkum RB16 og RB 20 í mánuðinum sem hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni.
 
Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.
Senda grein