Fréttir



Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa og Hlutabréfavísitala GAMMA

1.4.2014 Vísitölur

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa stóð í stað í mars og Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,5%. Við ársfjórðungslega endurstillingu Hlutabréfavísitölunnar kemur N1 nýtt inn í vísitöluna og er fjöldi félaga innan vísitölunnar 9 talsins.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa stóð í stað í mars og meðaldagsveltan var 142 milljónir.

Gefin voru út bréf í flokkum ISLA CBI 16, ISLA CBI 24 og LBANK CB 16 í mánuðinum, en að öðru leyti breyttust vigtir innan vísitölunnar lítið. Hlutfall verðtryggðra bréfa lækkar um 1% milli mánaða og er nú 89% af vísitölunni. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkar um 3,6 ma. í mánuðinum og er nú 129,9 ma. Líftími vísitölunnar lækkar um 0,1 og er 8,2 ár.
Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,5% í mars og nam meðaldagsveltan 732 milljónum. Mest hækkun var á bréfum í TM (+4,0%) og Eimskip (+1,5%) og mest lækkun var á bréfum í Marel (-8,3%) og VÍS (-4,6%) að teknu tilli til arðgreiðslna. Vísitalan mælir heildarávöxtun og eru arðgreiðslur því endurfjárfestar í vísitölunni.
 
Hlutabréfavísitala GAMMA er endurstillt ársfjórðungslega og er endurstillt þessi mánaðamót samkvæmt þeirri aðferðafræði sem birt er á http://www.gamma.is/visitolur. Við endurstillingu að þessu sinni kemur nýtt fyrirtæki inn í vísitöluna, þ.e. N1, og er vægi þess tæp 5% af vísitölunni. Samtals inniheldur vísitalan nú 9 fyrirtæki.
 
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða í síma 519-3300.
Senda grein