Fréttir



Skuldabréfavísitölur GAMMA apríl 2014

1.4.2014 Vísitölur

Meðfylgjandi má finna upplýsingar um gengi Skuldabréfavísitalna GAMMA í mánaðarlok mars, ávöxtun síðastliðins mánaðar sem og uppfærðar hlutfallsvigtir fyrir apríl 2014.

Heildarvísitalan, GAMMA: GBI, stóð í stað í mars. Verðtryggða vísitalan GAMMAi lækkaði um 0,8% og óverðtryggða vísitalan GAMMAxi hækkaði um 1,9%. Meðaldagsvelta GBI var 9,0 ma., þar af 1,6 ma. með verðtryggt og 7,4 ma. með óverðtryggt.

Hlutfall óverðtryggðra bréfa hækkaði og er nú 30,6% sem er 0,9% hækkun frá febrúar mánuði. Markaðsverðmæti skuldabréfa í vísitölunni hækkaði um 6 ma. og er nú 1.403 ma. Líftími vísitölunnar lækkaði um 0,2 og er 8,3 ár.

Gefnir voru út 2,8 ma. í RB16 og 3,2 ma. í RB20 og hækkar hlutfall þeirra í vísitölunni af þeim sökum. 

Mánaðaryfirlitið með ítarlegri upplýsingum má finna hér.

Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300.

Senda grein