Bloomberg fréttaveitan birtir vísitölur GAMMA
Nú er hægt að nálgast allar vísitölur GAMMA á Bloomberg fréttaveitunni. Vísitölurnar eru auk þess birtar á datamarket.is og sendar út á póstlista í lok hvers viðskiptadags.
Nú er hægt að nálgast allar vísitölur GAMMA á Bloomberg fréttaveitunni. Vísitölurnar eru auk þess birtar á datamarket.is og sendar út á póstlista í lok hvers viðskiptadags, endurgjaldslaust. Áður hafði einungis verið hægt að nálgast Skuldabréfavísitölu GAMMA á fréttaveitunni en vísitölur fyrir hlutabréf, fyrirtækjaskuldabréf og blandaða vísitala GAMMA eru nú einnig aðgengilegar.
Auðkenni vísitalnanna eru eftirfarandi:
<GAMMA> Skuldabréfavísitala GAMMA, þar af <GAMMAI> Verðtryggt og <GAMMAXI> Óverðtryggt
<GAMMAEQI> Hlutabréfavísitala GAMMA
<GAMMACBI> Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa
<GAMMATR> Markaðsvísitala GAMMA
Þeir sem vilja fá vísitölugildi send daglega í tölvupósti vinsamlegast látið okkur vita á emaili gamma@gamma.is eða síma 519-3300. Frekari upplýsingar um vísitölurnar má finna á http://www.gamma.is/visitolur/.